Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 19 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 386
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn um tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026. og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 20. ágúst 2026. um 3. lið tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík varðandi reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar verði afnumdar og aukinn sveigjanleiki tryggður svo unnt verði að meta aðstæður í hverju tilviki fyrir sig.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka vandaða umsögn frá sérfræðingum umhverfis- og skipulagssviðs og Eflu fyrir vandaða og faglega umsögn. Umsögnin sýnir svo ekki verður um villst að tillagan um afnám hámarksfjölda bílastæða er óígrunduð, illa hugsuð og stríðir gegn grunnmarkmiðum borgarinnar og svæðisins í skipulags- og samgöngumálum.