Síðast Samþykkt á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 388
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis og skipulagsráðs, dags. 24. júní 2026 um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík og vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, dags 1. september 2026 um 7. lið tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins sem snýr að endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík um að eiga samtal við hagaðila um ný sleppistæði fyrir sendla og vörudreifingu í miðborginni svo greiða megi fyrir afhendingu vara.
Svar

Samþykkt að vísa tillögunni um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík, vegna sleppistæða inn í vinnu um útfærslu skammtíma sleppistæða í miðborginni í nálægð við veitingastaði og verslanir með vísan til 8. liðs þessarar fundargerðar.
Lögð fram svohljóðandi bókun Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Borgarfulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks, fagna því að virkt samráð sé þegar til staðar við hagaðila um vörudreifingu í miðborginni. Mikilvægt er að samtalið leiði til markvissra úrbóta og nýrra sleppistæða þar sem þörf er á, svo greiða megi fyrir öruggri og skilvirkri afhendingu vara.