Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn fagnar því að 15 bílastæði í miðborginni sem meðal annars hafa verið nýtt undir götugögn og aðra tímabundna starfsemi yfir sumarmánuðina verði nú opnuð á ný fyrir lagningu bíla. Með því nýtist borgarlandið betur yfir vetrarmánuðina, stæðin verða á ný tekjuaflandi fyrir borgina og um leið eykst aðgengi fyrir gesti sem vilja sækja verslun, veitingastaði, menningu og aðra fjölbreytta þjónustu í miðborginni. Öflug og blómleg miðborg þarf að vera aðgengileg allt árið um kring og mikilvægt er að nýta þau bílastæði sem þegar eru til staðar þegar ekki er þörf fyrir þau undir aðra starfsemi. Meirihlutinn telur þetta gott dæmi um sveigjanlega og skynsamlega nýtingu borgarrýmis sem tekur mið af ólíkum þörfum eftir árstíðum.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar furða sig á að hvílustæði og hjólastæði í miðborginni séu fyrst og fremst metin sem svæði sem eigi að færa aftur undir bílastæði. Miðborg Reykjavíkur á að vera lifandi og skemmtileg. Í þessum aðgerðum hafa verið fjarlægðir hjólabogar af nokkrum stöðum í miðborginni sem er mjög óheppilegt. Góðir staðir til að geyma hjól og læsa með öruggum hætti er nauðsynlegt og kemur líka í veg fyrir að fólk læsi hjólum við ljósastaura eða umferðarmerki. Það skýtur einnig skökku við að hér séu útiborð veitingastaða og hjólaborð fjarlægð til að endurheimta 15 bílastæði á sama tíma og borgin er að fara í átak til að auka nýtingu bílastæðahúsa í miðborginni þar sem þau eru vannýtt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Hún er dapurleg sýnin sem Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsóknarflokkur hafa um fagurt og gefandi borgarlíf og hvernig eigi að gera borgarumhverfið mannvænt og skemmtilegt. Nú fjarlægja þessir flokkar ótal viðverurými í miðborginni sem hafa lífgað upp á umhverfið og gefið fólk tækifæri til félagstengsla. Aftur verður komið fyrir bílastæðum með tilheyrandi aukningu bílaumferðar og mannlífið er fjarlægt. Eins eru fjarlægðir ótal hjólabogar sem sendir afar köld skilaboð til hjólreiðamanna og þeirra sem kjósa virka ferðamáta til sinna ferða um borgina. Þetta er gríðarleg afturför og hugmyndir þessara flokka um endurreisn Reykjavíkur sem bílaborgar stríðir gegn allri þeirri framþróun og stefnu sem lífvænlegustu og bestu borgir heimsins hafa markað sér.