Samþykkt að vísa til umsagnar umhverfis- og skipulagssvið. Fulltrúar Samfylkingarinnar sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Tillaga nýs meirihluta um endurskoðun bílastæðamála í Reykjavík er um margt ágæt þó sum atriði tillögunnar orki tvímælis og taki á atriðum sem nýlega hefur þegar verið samþykkt að taka til endurskoðunar, t.a.m. er varðar gjaldskyldu bílastæða í miðborginni. Að sleppa hámarksfjölda bílastæða á nýbyggingarreitum lausum mun skapa óvissu í skipulagsgerð og ekki einfalda þá þegar flóknu vinnu sem deiliskipulagsvinna getur oft verið. Liður nr. 4 í tillögunni vekur ugg um að nýr meirihluti ætli að taka til baka þær breytingar í miðborginni þar sem mannlífinu hefur verið gefið aukið pláss. Mikilvægt er að tryggja göngugötur áfram í sessi og að áætlanir um stækkun gönguvænna svæða haldi.