Síðast Samþykkt á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 388
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins: Lagt er til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að fela umhverfis- og skipulagssviði að koma með tillögur að því hvernig megi útfæra skammtíma sleppistæði í miðborginni í nálægð við veitingastaði og verslanir, til að greiða aðgengi að heimsendingar- og leigubílaþjónustu og styðja við rekstrar möguleika veitingastaða og verslana í miðborginni. Sviðinu er falið að vinna tillögurnar í samvinnu við aðila sem reka sendla- og leigubílaþjónustu til að fá gögn um staði sem mest þörf er á sleppistæðum út frá vinsælum stoppistöðvum. Greinargerð fylgir tillögu.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Heimsendingar á mat og vörum hafa aukist verulega á síðustu árum og eru orðnar fastur hluti af daglegu lífi margra. Þessi þróun kallar á að borgarumhverfið taki mið af breyttum þjónustuháttum. Meirihlutinn telur mikilvægt að skoða möguleika á aðstöðu fyrir skammtímastopp í miðborginni með sérstökum sleppistæðum í nágrenni verslana, veitingastaða og þjónustu. Markmiðið er að gera sendibílstjórum kleift að sækja og afhenda vörur með skjótum og öruggum hætti án þess að leggja ólöglega eða þurfa að greiða fullt bílastæðagjald fyrir örfárra mínútna stopp. Slík stæði geta bætt umferðaröryggi, dregið úr ólöglegum stöðvunum og stutt við rekstrarumhverfi fyrirtækja í miðborginni. Jafnframt nýtast þau fleiri mikilvægum þjónustuaðilum, svo sem leigubílum og velferðarþjónustu sem sinnir meðal annars heimsendingu matar og lyfja og akstursþjónustu.