Samþykkt með 5 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins gegn 2 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar samþykkir framlagðar breytingar á Reglum um fjölda bíla- og hjólastæða í Reykjavík. Með breytingunum falla almenn bindandi hámarksgildi um fjölda bílastæða við nýbyggingar og endurnýjun byggðar niður. Endurskoðuð viðmiðunargildi verða áfram lögð til grundvallar við mat á bílastæðaþörf, en heimilt verður að víkja frá þeim til fjölgunar eða fækkunar þegar staðsetning, landnotkun, aðstæður og þarfir viðkomandi uppbyggingar gefa tilefni til. Frávik skulu rökstudd og samgöngumat áfram nýtt þar sem við á. Markmiðið er að tryggja að fjöldi bílastæða ráðist af gagnsæju, málefnalegu og staðbundnu mati í stað ósveigjanlegra hámarksgilda. Afnám hámarksgilda felur ekki sjálfkrafa í sér fjölgun bílastæða en gefur húsbyggjendum færi á að mæta þörfum og kröfum markaðarins. Eftir því sem kostur er verði kaup eða leiga bílastæðis aðskilin frá kaupum eða leigu íbúðar, þannig að kostnaður við stæðin falli á notendur þeirra. Breytingarnar eru í samræmi við samþykkt borgarstjórnar frá 16. júní 2026 og fela ekki í sér að fallið sé frá markmiðum borgarinnar um breyttar ferðavenjur, skilvirka landnýtingu og vandað borgarumhverfi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Afnám á hámarksfjölda bílastæða, sérstaklega í ljósi nýsamþykkts 90% afsláttar af gatnagerðargjöldum neðanjarðar, er varhugaverð skipulagsstefna sem gengur gegn svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Deiliskipulagsgerð er flókið ferli þar sem vega þarf og meta marga ólíka þætti – ekki síst umferð, samgöngur, öryggi og gæði nærumhverfisins. Að sleppa hámarksfjölda bílastæða lausum einfaldar ekki þessa flóknu vinnu heldur eykur óvissu í allri skipulagsgerð. Með því að gefa fjölda bílastæða við nýbyggingar alveg frjálsan er hætta á að við sitjum uppi með lakari hverfi fyrir almenning, þar sem bílakjallarar og bílaumferð stýra hönnuninni í stað lífsgæða íbúa. Sjálfsagt er að sýna sveigjanleika og taka mið af ólíkum aðstæðum í hverfum borgarinnar. Enda var aukið svigrúm innleitt í regluverkið í apríl 2026 til að mæta þeim þörfum. En lausnin er ekki að fella niður alla ramma. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs og Eflu staðfestir að afnám hámarks svipti borgina mikilvægu stýritæki í borgarhönnun. Sambland af afnámi hámarka og stórfelldum afslætti á gatnagerðargjöldum skapar hættulegan hvata til að reisa dýra bílakjallara á kostnað útsvarsgreiðenda. Ef auka á svigrúm innan ramma reglnanna verður fortakslaust að krefjast skýrra mótvægisaðgerða – sérstaklega aðskilnaðar á kostnaði bílastæða frá íbúðarverði, svo íbúðakaupendur án bíls séu ekki knúnir til að niðurgreiða fimm milljóna króna bílastæði fyrir aðra. Enda hlýtur maður að spyrja hvort markmið meirihlutans sé að ná loftslagsmarkmiðum borgarinnar einfaldlega með því að fela alla bíla landsins neðanjarðar – á 90% afslætti hjá útsvarsgreiðendum.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Ekki hefur verið nægilega vel girt fyrir að geðþóttaákvarðanir um bíla- og hjólastæðafjölda verði teknar. Fulltrúi Vinstrisins telur að áður samþykktar breytingar á viðmiðum hafi verið góðar og að óþarfi hafi verið að afnema hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Eins er fráleitt að hækka lágmarsviðmiðin um bílastæði fyrir námsmannaíbúðir.