Síðast Samþykkt á fundi fyrir 19 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 386
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 25. ágúst 2026, um að umhverfis- og skipulagsráð samþykki eftirfarandi; bílahús Bílastæðasjóðs Reykjavíkur verði opin allan sólarhringinn, alla daga ársins (24/7) og eftirlit, öryggisgæsla og þjónusta verði færð frá starfsstöð Bílastæðasjóðs til starfsstöðvar þjónustuaðila.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks fagnar þeim umbótum sem þegar hafa verið gerðar á lýsingu og eftirliti í bílahúsum Reykjavíkurborgar. Frá árinu 2019 hefur lýsing verið endurnýjuð með uppsetningu 1.705 LED-lampa, neyðarlýsing verið bætt og eftirlitsmyndavélum fjölgað og eldri búnaður endurnýjaður. Samþykkt um sólarhringsopnun bílahúsanna og samfellda vöktun er mikilvægt næsta skref í að bæta aðgengi, þjónustu og öryggi notenda. Með því að færa vöktun, öryggisgæslu og þjónustu til sérhæfðs þjónustuaðila er stefnt að skýrari ábyrgð, styttri viðbragðstíma og áreiðanlegri þjónustu allan sólarhringinn. Mikilvægt er að breytingunni verði fylgt eftir með skýrum kröfum um þjónustustig, viðbragðstíma og reglulegu mati á reynslu og öryggistilfinningu notenda. Þannig verði tryggt að breytingin skili raunverulegum og mælanlegum umbótum í þjónustu, vöruframboði og öryggi.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Það er í fullkomnu samræmi við borgarsýn Samfylkingarinnar að beina bílaumferð í bílastæðahús og nýta þau betur allan sólarhringinn. Ánægjulegt er að sjá staðfest að umfangsmikil endurnýjun á lýsingu og myndavélakerfum, sem hófst á síðasta kjörtímabili með uppsetningu yfir 1.700 LED-lampa, sé að skila auknu öryggi og hagkvæmari rekstri. Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á að hópar í samfélaginu upplifa meira óöryggi eða jaðarsetningu í almannarými og forðast oft staði eins og bílastæðahús. Við leggjum því ríka áherslu á að víðtæk jafnréttis- og öryggissjónarmið séu höfð að leiðarljósi við frekari endurbætur, staðsetningu vöktunarbúnaðar og lýsingu. Huga þarf að þrifum og mögulega merkingu stæða fyrir ákveðna hópa. Rétta leiðin til að efla miðborgina felst í faglegri þjónustuaukningu þar sem öryggi, aðgengi og upplifun allra borgarbúa er sett í fyrirrúm.