Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.
Verið er að færa fjármagn að upphæð kr. 19.924.287,- milli deilda innan málaflokks 04 - Fræðslu- og uppeldismál.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er kr. 0,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta óbreytt áætluð jákvæð um kr. 67.060.000,-.Samþykkt