Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 153
Annað
Fyrirspurn
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja samning um stofnframlag vegna kaupa Brynju leigufélags ses. á íbúð á Selfossi, með þeim fyrirvara að bæjarstjórn samþykki viðauka vegna stofnframlaganna. 12% hlutur sveitarfélagsins í stofnframlaginu nemur tæpum 6 m.kr. Einnig er lagt til við bæjarráð að veita bæjarstjóra fullt og óskorað umboð til að undirrita samninga og skjöl vegna stofnframlaganna fyrir hönd sveitarfélagsins, með sama fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar um viðauka vegna verkefnisins.
Brynja Leigufélag sótti um stofnframlag fyrir 7 íbúðum í Árborg til HMS árið 2022, sveitarfélagið staðfesti samþykki fyrir umsókninni á 148. fundi bæjarráðs sem haldinn var 5. maí 2022. Framangreind íbúð er 6. íbúðin sem fær stofnframlag samkvæmt umsókninni.
Svar

Bæjarráð samþykkir samninginn vegna stofnframlaganna, allt að fjárhæð 6 m.kr. sem bókast undir fjárfestingar ársins 2025. Bæjarstjóra er veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita samninga og skjöl vegna stofnframlags fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþykkt