Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 151
Annað
Fyrirspurn
Viðauki nr. 8
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er jákvæð kr. 52.434.010,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð jákvæð um kr. 67.060.000,-.

Áhrif viðaukans á A hluta er jákvæð um kr. 52.434.010,- og hækkar því rekstrarafgangur í A hluta og er áætlaður neikvæður um rúmar kr. 529.457.000,- eftir að viðauki er samþykktur.

Aukinn kostnaður skv. viðaukanum er kr. 17.565.990,-, auknar tekjur frá Jöfnunarsjóði eru 70.000.000,-. Auknum kostnaði er því mætt með auknum greiðslum frá Jöfnunarsjóði. Samþykkt