Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 66
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 151. fundi bæjarráðs frá 27. nóvember sl. liður 4. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 8.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 8 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er jákvæð kr. 52.434.010,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð jákvæð um kr. 67.060.000,-.
Áhrif viðaukans á A hluta er jákvæð um kr. 52.434.010,- og hækkar því rekstrarafgangur í A hluta og er áætlaður neikvæður um rúmar kr. 529.457.000,- eftir að viðauki er samþykktur.
Aukinn kostnaður skv. viðaukanum er kr. 17.565.990,-, auknar tekjur frá Jöfnunarsjóði eru kr. 70.000.000,-. Auknum kostnaði er því mætt með auknum greiðslum frá Jöfnunarsjóði.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum; 6 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og 2 atkvæðum B-lista. Bæjarfulltrúar S-lista sitja hjá.