Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 67
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 153. fundi bæjarráðs frá 11. desember sl. liður 4. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki 9. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.
Verið er að færa fjármagn að upphæð kr. 19.924.287,- milli deilda innan málaflokks 04 - Fræðslu- og uppeldismál.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu Sveitarfélagsins Árborgar (A og B hluta) er kr. 0,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta óbreytt áætluð jákvæð um kr. 67.060.000,-
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.