Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Bæjarráð nr. 153
Annað
Fyrirspurn
Minnisblað bæjarstjóra, dags. 8. desember, um þarfagreiningu á húsnæðisþörf stofnanna á vegum Sveitarfélagsins Árborgar.
Svar

Bæjarráð samþykkir að hefja formlega þarfagreiningu á mögulegri samnýtingu húsnæðis stofnana sveitarfélagsins til framtíðar og valkosta við uppbyggingu. Um er að ræða m.a. Tónlistarskóla, frístundastarfsemi, menningarhús, starfsemi stjórnsýslu sveitarfélagsins og fleiri stofnana. Mannvirkja- og umhverfissvið leiði verkefnið í samráði við bæjarstjóra og bæjarráð og geti einnig kallað til lykilstarfsmenn stofnana í vinnuferlinu. Afurð vinnunnar liggi fyrir í apríl 2026 og verði í formi skýrslu með valkostum um mögulega samnýtingu húsnæðis og staðsetninga. Gert er ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun 2026.Samþykkt