Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 118. fundu bæjarráðs frá 20. febrúar sl. liður 2. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 1.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025 vegna hækkunar á rekstrarsamningi um Selfossvöll, til að mæta hækkun rekstrarkostnaðar. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 4.400.000,-. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 4.400.000,- og lækkar því rekstrarafgangur í A hluta áætlaður neikvæður um 513.550 þúsund krónur eftir að viðauki er samþykktur. Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 4.400.000,- og verður því rekstrarafgangur samantekins A og B hluta áætlaður jákvæður um 81.535 þúsund krónur. Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.
Svar

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.