Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 388
Annað
Fyrirspurn
Aflétt úr trúnaðarbók, kynning, samantekt að skýrslu ásamt bókanir sem var fært í trúnaðarbók á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 2 liður, dags. 26. ágúst 2026: Fram fer í trúnaði kynning á niðurstöðum könnunar vegna samgangna og úrgangsmála, unnin á vegum styrktarverkefnis (Pilot City Project) sem tengist Loftslagsborgarsamningi. Einnig eru lögð fram samantekt að rannsóknarskýrslu. Trúnaður ríkir um samantekt að skýrslu þar til umbrot er fullunnið.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn þakkar fyrir framlagða samantekt á niðurstöðum Pilot Cites verkefnisins og telur niðurstöðurnar bæði áhugaverðar og gagnlegar. Þær veita mikilvæga innsýn í venjur, viðhorf og upplifun íbúa hvað varðar úrgangsmál og samgöngur og geta nýst við áframhaldandi stefnumótun og forgangsröðun verkefna. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að ákveðnar áskoranir eru enn til staðar, meðal annars hvað varðar aðgengi að endurvinnsluúrræðum og innviði sem styðja við aukna flokkun, sem og möguleika fólks til að velja sér fjölbreyttari samgöngumáta. Mikilvægt er að bregðast við þeim áskorunum sem fram koma og huga sérstaklega að því hvernig unnt sé að ná betur til þeirra hópa sem síður flokka úrgang eða nýta endurvinnsluúrræði en aðrir. Meirihlutinn telur mikilvægt að líta til þeirra sjónarmiða og ábendinga sem fram koma í rannsókninni við áframhaldandi þróun þjónustu og innviða borgarinnar.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar þakka fyrir þessa vinnu, niðurstöðurnar sýna að íbúar eru almennt reiðubúnir til að flokka meira og velja vistvænni ferðamáta, en að aðgengi, tími, kostnaður, öryggi og samhæfing daglegra ferða ráði úrslitum um hvort slíkar breytingar verði raunhæfar. Brýnt er að borgin haldi áfram að bæta aðgengi að grenndarstöðvum og sérflokkun, tryggi reglubundna tæmingu og skýrar upplýsingar, og forgangsraði öruggum og samfelldum innviðum fyrir gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Sérstaklega þarf að horfa til þeirra svæða sem íbúar meta sem óaðgengileg eða óörugg, þar á meðal Skeifunnar og Granda. Mikilvægt er að umbreyting í samgöngum sé sanngjörn og taki mið af daglegum veruleika fólks, einkum fjölskyldna með börn og þeirra sem þurfa af heilsu-, fötlunar- eða atvinnuástæðum að hafa aðgang að bíl. Markmiðið á að vera að gera vistvæna kostinn að einfaldasta og besta valkostinum, án þess að draga úr raunverulegu ferðafrelsi íbúa.