Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar leggur áherslu á að borgarbúar fái aukin tækifæri til að nýta sjóinn og strandlengjuna í kringum Reykjavík til útivistar, samveru og afþreyingar. Bað- og sánamenning hefur farið vaxandi og stuðlar sú þróun að því að efla mannlíf við sjóinn og skapa nýjar leiðir fyrir borgarbúa til að njóta náttúrunnar allt árið um kring. Meirihlutinn fagnar því að nú sé stigið næsta skref í verkefninu Haftengd upplifun með því að bjóða út aðstöðu fyrir flotgufur. Mikilvægt er að hafa í huga kostnað borgarinnar vegna verkefnisins. Verkefnið er spennandi liður í því að nýta strandlengju Reykjavíkur betur í þágu borgarbúa og skapa fjölbreyttari tækifæri til útivistar og afþreyingar við sjóinn. Jafnframt er ánægjulegt að með útboðinu skapist tækifæri fyrir einkaaðila til að þróa nýja þjónustu og standa að rekstri hennar. Meirihlutinn hlakkar til að sjá verkefnið verða að veruleika, strandlengju borgarinnar verða enn aðgengilegri og líflegri og ekki síður til að mæta sjálfur í sánuna þegar þar að kemur.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Hér er um spennandi verkefni að ræða sem eykur mannlíf og bætir lýðheilsu. Jafnframt eykur framtakið haftengda upplifun og undirstrikar sérstöðu Reykjavíkur sem borg sem er umlukin sjó. Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja þó áherslu á að verkefnið verði útfært með jöfnuð í huga. Útboðsskilmálar þurfa að tryggja almennt aðgengi, hóflegt verðlag og öryggi. Verkefnið er vel heppnað ef sem flestir geta notið þess án tillits til efnahags eða annarra þátta.