Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Bæjarstjórn nr. 68
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 155. fundi bæjarráðs frá 8. janúar, liður 6. Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar. Uppfærð drög að breyttum reglum um fyrirkomulag um Hverfisráð Árborgar ásamt minnisblaði frá bæjarstjóra og bæjarritara, dags. 29. desember.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti drög að reglum um fyrirkomulagi hverfisráða í Sveitarfélaginu Árborg og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Sigurjón lagði fram breytingartillögu um að málinu yrði frestað til næsta fundar bæjarstjórnar.

Breytingartillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.