Bæjarráð fer yfir tillögu að fulltrúum úr bæjarstjórn sem myndu skipa hverfisráðin á Eyrabakka, Stokkseyri og Sandvíkurhreppi. Tveir bæjarfulltrúar sitja í hverju ráði og er lagt til að Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista verði fulltrúar í hverfisráði Eyrarbakka, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista í hverfisráði Stokkseyrar og Kjartan Björnsson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista í hverfisráði Sandvíkurhrepps. Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð fagnar þeim mikla áhuga sem kom fram á fundum hverfisráðanna þriggja. Það er afar bagalegt að ekki skuli hafa verið starfandi hverfisráð allt kjörtímabilið sem hefur gert það að verkum að tækifæri til þess að eiga mikilvægt samráð við íbúa um málefni nærsamfélagsins hafa glatast.
Arna Ír Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi S-lista
Samþykkt