Fyrirspurn
Tillaga frá 167. fundi bæjarráðs liður 1. Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar.
Fulltrúar bæjarfulltrúa í hverfisráðum Sveitarfélagsins Árborgar.
Bæjarráð fer yfir tillögu að fulltrúum úr bæjarstjórn sem myndu skipa hverfisráðin á Eyrabakka, Stokkseyri og Sandvíkurhreppi. Tveir bæjarfulltrúar sitja í hverju ráði og er lagt til að
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista verði fulltrúar í hverfisráði Eyrarbakka, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista í hverfisráði Stokkseyrar og Kjartan Björnsson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista í hverfisráði Sandvíkurhrepps.
Bæjarráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillöguna.