Fyrirspurn
Á 69. fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var 4. febrúar sl., voru samþykktar breytingar á samþykktum um hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar.
Bæjarstjórn skal skipa tvo bæjarfulltrúa til setu á fundum hvers hverfisráðs sem áheyrnarfulltrúar, þar sem þau hafi málfrelsi en ekki tillögu- eða atkvæðisrétt.
Gert er ráð fyrir að með hverju hverfisráði starfi einn úr meirihlutanum og annar úr minnihlutanum. Óskað er eftir tillögum frá bæjarfulltrúum að skipun þessara aðila.