Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 vikum síðan.
Bæjarstjórn nr. 69
Annað
Fyrirspurn
Afgreiðslu á breyttum samþykktum fyrir hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar var frestað til næsta fundar á 68. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 21. janúar sl. Nýjar tillögur að Samþykktum fyrir hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar eru nú teknar fyrir. Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samþykktir hverfisráða Sveitarfélagsins Árborgar.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Björgvin G. Sigurðsson, S-lista.

Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, varaforseti, tekur yfir stjórn fundarins kl. 16:16.

Kjartan Björnsson, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls. Kjartan Björnsson yfirgefur fundinn kl. 16:22.

Kjartan Björnsson, D-lista, kemur inn á fundinn og tekur aftur yfir stjórn fundarins kl. 16.25.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, 2 atkvæðum S-lista, 1 atkvæði B-lista, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista. Arnar Freyr Ólafsson, B-lista situr hjá og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista greiðir atkvæði á móti tillögunni.

Bæjarstjóri boðar til fyrsta aðalfundar hverfisráðanna.