Fyrirspurn
Tillaga frá 55. fundi skipulagsnefndar frá 14. janúar sl. liður 3. Skátafélagið Fossbúar - Deiliskipulag - Félags- og útivistarsvæði.
Lögð er fram tillaga að lokinni kynningu og auglýsingu í samræmi við 40. og 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, nýtt deiliskipulag sem tekur til hluta opins svæðis OP1. Í deiliskipulaginu felst afmörkun útivistarsvæðis sem Skátafélagið Fossbúar munu hafa til afnota. Innan tillögunnar er afmarkað svæði þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis sem hýsir skátastarf í Árborg auk þess sem afmarkað er útivistarsvæði sem nýtist jafnt sem opið svæði fyrir almenning og starfsemi skátafélagsins. Markið tillögunnar er m.a. að nýta þá innviði sem svæðið hefur upp á að bjóða eins og bílastæði og gönguleiðir. Nýta þann gróður sem fyrir er og efla hann til muna með gróðursetningu nýrra plantna. Koma fyrir svæði sem nýtast má skólabörnum yfir veturinn til leikja og fræðslu. Koma fyrir litlum opnum húsum sem hýsa grillaðstöðu og fyrir útikennslu barna auk þess sem gert er ráð fyrir góðri tengingu við önnur opin svæði í næsta nágrenni.
Tillagan var sérstaklega kynnt nágrönnum á áhrifasvæði tillögunnar frá 25.9.2025, til og með 17.10.2025. Þá var tillagan auglýst í Dagskránni, Lögbirtingarblaði frá 13.11.2025-02.01.2026, auk þess að vera aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar.
Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Vegagerðinni og Minjastofnun. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum. Samantekt skipulagsfulltrúa er varðar athugasemdir og viðbrögð er lögð fram við afgreiðslu málsins.
Að mati skipulagsnefndar Árborgar er athugasemdum svarað með fullnægjandi hætti innan samantektar skipulagsfulltrúa á athugasemdum og andsvörum sem lögð er fram við afgreiðslu tillögunnar. Gerðar eru tillögur að ákveðnum viðbrögðum við athugasemdum með uppfærslu á tillögunni. Í því fellst að innan greinargerðar verði með ítarlegri hætti fjallað um og metið um hugsanlegan fjölda notenda innan svæðisins með tilliti til áætlaðrar notkunar. Út frá því mati verði meti hvort ástæða sé til fækkunar bílastæða innan svæðisins og að þeim snúið til að minnka áhrif bílljósa á aðliggjandi byggð. Jarðvegsmön verði felld út úr skipulagsáætlun og í stað hennar verði gert ráð fyrir lágvöxnum þéttvaxta gróðri á beltinu sem skilur skipulagssvæðið frá íbúðarsvæðinu þar sem áður var gert ráð fyrri mön. Bætt verði við nánari umfjöllun um aðliggjandi hverfi innan greinargerðar deiliskipulagsins og skilgreind verði áætluð staðsetning sorpskýlis á uppdrætti skipulagsins.
Með fyrirvara um framlagðar úrbætur á skipulagstillögunni mælist skipulagsnefnd til þess við bæjarstjórn að tillagan taki gildi með birtingu í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þeim sem athugasemdir gerðu við skipulagið verði tilkynnt niðurstaða sveitarfélagsins eftir gildistöku tillögunnar.