Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 72
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 166. fundi bæjarráðs frá 9. apríl sl. liður 6. Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026-2031.
Lögð er fram til samþykktar Brunaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00. Áætlunin gildir til febrúar 2031.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031 og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja áætlunina.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031.