Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Bæjarstjórn nr. 67
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 153. fundi bæjarráðs frá 11. desember sl. liður 6. Umgjörð og rekstur Sorpstöðvar Suðurlands - aðkoma SASS. Tekinn er sérstaklega fyrir liður 4. í fundargerð stjórnar Samtaka Sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 5. desember 2025 vegna breytinga á umgjörð og rekstri SOS sem þarfnast aðkomu SASS. Á aðalfundi SOS 24. október sl. var samþykkt að hefja undirbúning að breytingum á rekstri og starfsemi SOS þar sem daglegur rekstur og faglegt starf SOS yrði falið SASS á grundvelli samning þess efnis. Lagt er til að bæjarráð að samþykkja fyrir sitt leyti aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi ályktanir aðalfundar SOS og fyrirliggjandi samningsdrög og að vísa erindinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á umgjörð og rekstri SOS og aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi gögn. Bæjarráð vísar erindinu til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.
Svar

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingar á umgjörð og rekstri SOS og aðkomu SASS að verkefninu í samræmi við fyrirliggjandi gögn.