Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 dögum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Stjórnarráðsreit. Skipulagssvæðið afmarkast af Lindargötu, Ingólfsstræti, Skúlagötu og Klapparstíg. Nýtt deiliskipulag geri ráð fyrir blandaðri notkun Stjórnarráðs Íslands, opinberrar þjónustu, almennrar þjónustu, menningarstarfsemi og búsetu.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Strætó bs, Veitum, Vegagerðinni, eftirtöldum deildum skrifstofum og sviðum Reykjavíkurborgar; skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu, skrifstofu umhverfisgæða, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, skóla- og frístundasviði, lóðarhafa aðliggjandi lóða, íbúa innan svæðisins og kynna hana fyrir almenningi.