Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Veitum, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Vegagerðinni, Strætó bs, Betri Samgöngum, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, skrifstofu framkvæmda og fasteignaþjónustu, skrifstofu borgarlands og skrifstofu umhverfisgæða innan umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, skóla- og frístundasvið Reykjavíkur, velferðarsviði Reykjavíkur, íbúasamtökum, núverandi íbúum, rekstraraðilum á reitnum og kynna hana fyrir almenningi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins hreyfir ekki andmælum við því að skipulagslýsing Spangarinnar fari í kynningu enda mikilvægt að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila. Það er vert að taka fram Sjálfstæðisflokkurinn er andvígur þéttingingaráformum vinstri flokkanna í Grafarvogi og styður ekki framhald verkefnisins nema það njóti víðtæks stuðnings íbúa. Spöngin hefur þegar mótast sem þjónustu- og verslunarkjarni fyrir hverfið og mikilvægt er að þróun þess taki mið af því hlutverki, aðgengi, umferðaröryggi og lífsgæðum íbúa, fremur en að auka verulega þéttleika byggðar. Endanleg afstaða til deiliskipulags mun ráðast af því hvort tillögur taki mið af þessum sjónarmiðum og þörfum íbúa hverfisins.