Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins samþykkir að tillagan fari í auglýsingu enda mikilvægt að kalla fram sjónarmið íbúa og hagaðila áður en endanleg ákvörðun er tekin. Fulltrúinn leggur áherslu á að vanda þurfi til verka við undirbúning framkvæmdarinnar, sérstaklega með tilliti til kostnaðar. Ljóst er að um verulega fjárfestingu er að ræða og mikilvægt að tryggja hagkvæma og raunhæfa niðurstöðu. Áhersla ætti að vera á að byggja hóflegt og vel útfært húsnæði sem þjónar þörfum leikskólans, fremur en að ráðast í kostnaðarsamar útfærslur eða hönnunarsamkeppnir sem geta aukið kostnað án þess að bæta rekstur eða þjónustu til lengri tíma.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Fulltrúi Miðflokksins ítrekar enn og aftur mikilvægi þess að staðið verði að uppbyggingu við Dyngjuveg 18 með þeim hætti að það valdi íbúum í nágrenninu sem minnstu ónæði. Brýnt er að ráðin verði bót á miklum bílastæðavanda á svæðinu og leitast við að bæta við fleiri bílastæðum í tengslum við framkvæmdirnar en nú er áformað. Nú þegar eru of fá bílastæði í götunni miðað við þá miklu starfsemi sem þar er og ríkir vandræðaástand af þeim sökum. Fyrirhugað er að fjölga bílastæðum þegar svokölluð ævintýraborg hverfur af svæðinu en það verður ekki fyrr en eftir 2-3 ár í fyrsta lagi. Ljóst er að úrbætur á svæðinu þola ekki svo langa bið.