Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 dögum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 1057
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Stjórnarráðsreit. Skipulagssvæðið afmarkast af Lindargötu, Ingólfsstræti, Skúlagötu og Klapparstíg. Nýtt deiliskipulag geri ráð fyrir blandaðri notkun Stjórnarráðs Íslands, opinberrar þjónustu, almennrar þjónustu, menningarstarfsemi og búsetu.
Svar

Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1376/2025.