Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 383
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Stjórnarráðsreit. Skipulagssvæðið afmarkast af Lindargötu, Ingólfsstræti, Skúlagötu og Klapparstíg. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir blandaðri notkun Stjórnarráðs Íslands, opinberrar þjónustu, almennrar þjónustu, menningarstarfsemi og búsetu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Umsagnir bárust. Kynnt.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggur áherslu á að næsta skref verði að vinna nýtt deiliskipulag fyrir Stjórnarráðsreitinn, þennan mikilvæga uppbyggingarreit í hjarta borgarinnar. Þar gefst einstakt tækifæri til að skapa blandaða og lifandi miðborgarbyggð þar sem stjórnsýsla, þjónusta, menningarstarfsemi og búseta fara saman. Við áframhaldandi vinnu verði lögð áhersla á vandaða byggingarlist og almenningsrými, góðar tengingar við nærliggjandi borgarvef og að menningarsöguleg gildi svæðisins og núverandi byggingar séu virt.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Samfylkingin fagnar þeim metnaði sem býr í heildar skipulagningu reitsins og bættu aðgengi að almenningsrýmum. Mikilvægt er að huga að skipulagið ýti undir mannlíf og menningu miðborgarinnar með almenningsrýmum. Við leggjum ríka áherslu á að tekið verði mið af þeim mikilvægu ábendingum sem fram koma í umsögnum. Sérstaklega er brýnt að hugað verði vel að hljóðvist, starfsemi á jarðhæðum íbúðarhúsa og jarðvegsrannsóknum eins og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur bendir á, sem og góðu samráði við Veitur um legu innviða og jarðvegsframkvæmdir.