Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 viku síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 376
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni vegna flóttaleiða og lyftu. Einnig verða aðlöguð leiksvæði á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss vegna flóttaleiða og lyftu og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð. Notkun byggingar verður grunnskóli í notkunarflokki 1, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 20. mars 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.