Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 385
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til felst að gera bygginguna á lóð að varanlegum grunnskóla með allt að 250 nemendum og 45 starfsmönnum og verður notkun byggingar grunnskóli í notkunarflokki 1. Auk þess er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni á lóð vegna flóttaleiða og lyftu og aðlöguðum leiksvæðum á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð, ásamt því að kvöð um gangstétt fellur út, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 29. desember 2025. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Umsögn og athugasemdir bárust. Einnig eru lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. ágúst 2026.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihlutinn lýsir yfir ánægju með nýtt deiliskipulag og að nýr unglingaskóli í Ármúla muni vonandi komast hratt og örugglega í notkun í nálægð við það hverfi þar sem nemendur búa. Mikilvægt er að huga sérstaklega að öruggum samgöngum að skólanum, enda eru börn á þessum aldri að jafnaði sjálfstæð í ferðum sínum til og frá skóla og fara oftast gangandi eða hjólandi. Í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um öruggar og greiðar gönguleiðir fyrir skólabörn leggur meirihlutinn áherslu á að tryggðar verði örugg leið yfir götur og nauðsynlegar umferðaraðgerðir, svo sem góð lýsing og hraðahamlandi lausnir. Öryggi barna í nærumhverfi skólans er lykilatriði og mikilvæg forsenda þess að efla sjálfbærar samgöngur og heilbrigt líferni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar hafa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Ármúla 28–30, sem er mikilvægt skref í að efla nærþjónustu og grunnskólaframboð fyrir vaxandi íbúðahverfi í Múlunum og Skeifunni. Sérstaklega er fagnað metnaðarfullri hönnun og skapandi nýtingu á leiksvæðum á pöllum og þökum í þéttbýli. Samhliða stuðningi við tillöguna undirstrika fulltrúar Samfylkingarinnar að afar mikilvægt er að vanda vel til verka á næstu stigum verkefnisins og taka ríkt tillit til þeirra ábendinga og athugasemda sem komið hafa fram. Algjört frumskilyrði er að aðgengi og umferðaröryggi barna sé haft í öndvegi við alla frekari hönnun og framkvæmd. Ráðast þarf í nauðsynlegar umferðaröryggisaðgerðir, hækka innkeyrslur meðfram Ármúla, bæta lýsingu og tryggja öruggar þveranir við greiningu á hættulegum gatnamótum í nærumhverfinu áður en skólahald hefst. Einnig þarf að tryggja að farið sé eftir kröfum um samfellda hjólainnviði og að lágmarki 150 hjólastæði. Þá verður að mæta réttmætum áhyggjum nágranna með því að tryggja skýran aðskilnað á gönguleiðum barna og athafna- og vöruflutningasvæðum nærliggjandi fyrirtækja. Að lokum er undirstrikað að fullnægja verði öllum kröfum Heilbrigðiseftirlitsins er varða hljóðvist, loftgæði og fallvarnir á þaksvæðum við útgáfu byggingarleyfis.

108 Reykjavík
Landnúmer: 103792 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006735
Síðasta markaðsverð
610.000.000 kr.
Atvinnuhúsnæði · 2752 m² · 09.06.2022
Kaupskrá 1 eign
610.000.000 kr. 09.06.2022
Atvinnuhúsnæði · 2752 m² · bygg. 1965 · HMS