Síðast Vísað til borgarráðs á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 376
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Gunnars Bjarnasonar ehf., dags. 20. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna fjögurra lóða á reit A1. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðirnar A1.1-A1.4, núverandi spennistöð verður færð inn á nýja lóð eða inn í núverandi hús á reit A1.2, byggingarreitur bílakjallara nær undir alla lóðina, heildarbyggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt en byggingarmagn neðanjarðar eykst, íbúðir verða heimilaðar á öllum hæðum, en mögulegt verður að vera með atvinnustarfsemi á jarðhæð, og heimilt verður að gera þaksvalir ásamt því að öll bílastæði verða í bílakjallara og á móti hverju deilibílastæði verði hægt að falla frá 5 bílastæðum einkabíla, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Praxis arkitektúr, dags. 19. desember 2024. Einnig er lagt fram samkomulag lóðarhafa og Reykjavíkurborgar, dags. 18. mars 2026.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður að tillagan verði auglýst til að kalla fram athugasemdir hagaðila og fá betri mynd af áhrifum hennar. Jafnframt er ástæða til að hafa áhyggjur af stöðu bílastæðamála í hverfinu, sem þegar eru undir miklum þrýstingi. Forsendur um fækkun bílastæða í kjallara á grundvelli deilibíla eru óraunhæfar og geta leitt til aukins álags á nærliggjandi götur. Þá bendir fulltrúinn á að nauðsyn gæti verið að tryggja bílastæði ofanjarðar, sérstaklega fyrir hreyfihamlaða og gesti,. Þá er rétt að taka fram að fara verður í einu og öllu eftir gildandi reglugerðum um aðgengi fólks með skerta hreyfigetu.