Lögð fram umsókn Selsins Fasteignafélags ehf., dags. 29. desember 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir lóð nr. 28-30 við Ármúla. Í tillögunni sem lögð er til er gert ráð fyrir auknu byggingarmagni vegna flóttaleiða og lyftu. Einnig verða aðlöguð leiksvæði á pöllum, annars vegar á þaki bakhúss vegna flóttaleiða og lyftu og svo yfir núverandi lóð að hluta, og eykst byggingarmagn vegna þeirra þar sem þau mynda B-rými á lóð. Notkun byggingar verður grunnskóli í notkunarflokki 1, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Noland, dags. 20. mars 2026. Einnig er lagt fram samgöngumat VSB verkfræðistofu, dags. 20. mars 2026.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu. Komi til auglýsingar á tillögu að nýju deiliskipulagi, þarf umsækjandi áður að greiða skv. gr. 7.3 og 7.7 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1376/2025.