Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins styður framlagða deiliskipulagsbreytingu um að heimila íbúðir á efri hæðum við Austurstræti. Mikilvægt er þó að tryggja að samspil íbúa og núverandi starfsemi verði í sátt við umhverfið, enda er um að ræða svæði þar sem umfangsmikil veitinga- og skemmtanastarfsemi fer fram. Reynslan sýnir að skipulag af þessu tagi getur skapað árekstra ef ekki er vel staðið að undirbúningi. Því er brýnt að hljóðvist verði tryggð með fullnægjandi hætti og jafnframt að loftgæði í íbúðum verði þannig að ekki sé nauðsynlegt að opna glugga eða hurðir, til að lágmarka líkur á ónæði og ágreiningi í framtíðinni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Fulltrúi Framsóknar samþykkir þær deiliskipulagsbreytinguna um að leyfa íbúðir. Það skal þó benda á að tryggja verði að samspil íbúa í framtíðinni verði í sátt við núverandi umhverfi. Margir veitinga- og skemmtistaðir eru starfandi á neðri hæðum þessa húsnæðis og borgin hefur því miður reynslu á því, miðsvæðis í borginni, að skipulag af þessu tagi hafi bakað vandræði. Því vill fulltrúi Framsóknar árétta mikilvægi þess að tryggja hljóðvist í fyrirhuguðum íbúðum með þeim hætti að það ekki komi til árekstra milli íbúa og rekstraraðila.
Lögð fram svohljóðandi bókun Viðreisnar:
Um flottan stað fyrir íbúðir að ræða og ættu kaupendum að vera ljóst að þau eru ekki að velja sér stað þar sem hægt er að búast við rólegheitum í hjarta miðbæjarins.