Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar þeirri framtíðarsýn sem birtist í vinnslutillögu fyrir Spöngina. Hér er tækifæri til að styrkja Spöngina sem öflugan og lifandi hverfiskjarna Grafarvogs og skapa um leið eftirsóknarvert íbúðarumhverfi fyrir fólk á ólíkum æviskeiðum. Þá er vert að hrósa Reitum fyrir að hafa leitað eftir sjónarmiðum íbúa Grafarvogs með könnun sem sýndi mikinn stuðning meðal þátttakenda við aukna þjónustu í Spönginni. Mikilvægt er að byggja áfram á því samtali við íbúa við þróun svæðisins. Meirihlutinn fagnar áherslu á fjölbreyttar húsnæðisgerðir, vönduð og græn dvalarsvæði, skjólgóð almenningsrými og gott samspil íbúða, verslunar og þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir að stór hluti bílastæða fyrir íbúa verði neðanjarðar, sem skapar aukið rými ofanjarðar fyrir gróður, mannlíf og vönduð dvalarsvæði. Við áframhaldandi útfærslu verði sérstaklega hugað að nægu og aðgengilegu framboði bílastæða fyrir íbúa og gesti verslunar og þjónustu, auk þess sem hæðir og umfang bygginga verði vandlega metin með tilliti til aðliggjandi byggðar, skuggavarps og skjóls á dvalar- og almenningsrýmum. Uppbyggingin hefur alla burði til að verða mikil lyftistöng fyrir Grafarvog og gera Spöngina að enn betri stað til að búa á, sækja þjónustu og dvelja.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Samfylkingin fagnar þeirri faglegu vinnu sem fram hefur farið við framtíðarsýn fyrir Spöngina og þeim áherslum sem lagðar eru á að styrkja hana sem lifandi og fjölbreyttan hverfiskjarna Grafarvogs. Mikilvægt er að slíkt verkefni sé unnið í góðu og virku samráði við íbúa, rekstraraðila og notendur svæðisins frá fyrstu stigum og áfram í gegnum allt skipulagsferlið. Það er ánægjulegt að sjá að forsvarsfólk verkefnisins hefur þegar leitað eftir sjónarmiðum íbúa og að niðurstöðurnar benda til áhuga og stuðnings við frekari uppbyggingu í Spönginni. Tillagan gerir ráð fyrir bæði verulegri fjölgun íbúa og aukinni atvinnu- og þjónustustarfsemi og því má gera ráð fyrir aukinni umferð um svæðið. Mikilvægt er að með áframhaldandi vinnu fylgi vandað umferðarmat þar sem sérstaklega er horft til öryggis gangandi og hjólandi vegfarenda, ekki síst barna og eldra fólks. Spöngin er mikilvægur hluti af daglegu lífi Grafarvogs og framtíð hennar þarf því áfram að mótast með fólkinu sem býr og starfar í hverfinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Áheyrendafulltrúi Sósíalistaflokksins fagnar því að það skuli verða haft samráð við íbúa Grafarvogs um framtíðaruppbyggingu í Spönginni og þá sérstaklega eldri borgara sem sitja margir hverjir fastir í stærri eignum og vilja minnka við sig án þess að flytja burt. Mikilvægt er að losa um þá stíflu sem hefur myndast vegna þess að ekki hefur verið hugsað um að byggja mikið við hæfi eldri borgara sem eru enn á almennum fasteignamarkaði. Með því losnar um fjölskylduhúsin og um leið fjölgar börnum aftur í hverfisskólunum. Grafarvogsbúum hefur fækkað um nokkur þúsund meðal annars vegna þess að íbúar Grafarvogs eru að eldast.