Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 klukkutímum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 381
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í apríl 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Spöngina. Skipulagssvæðið afmarkast af Móavegi til norðurs, Borgarvegi til suðurs og Mosavegi til austurs. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir uppbyggingu í kring um núverandi byggingar á lóðinni. Fyrirhuguð uppbygging fer aðallega undir nýjar íbúðir en einnig skrifstofur, verslanir og þjónustu. Lýsingin var kynnt frá 8. maí 2026 til og með 5. júní 2026. Umsagnir bárust. Umsagnir sem bárust á kynningartíma skipulagslýsingar kynntar fyrir ráðinu. Kynnt.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks leggja áherslu á að markmið skipulagsvinnunnar verði fyrst og fremst að efla Spöngina sem þjónustukjarna Grafarvogs og bæta lífsgæði íbúa hverfisins. Mikilvægt er að áfram verði öflug verslun, heilbrigðisþjónusta, bókasafn og önnur nærþjónusta á svæðinu ásamt bættum almenningsrýmum og grænum svæðum. Við áframhaldandi vinnu verður sérstök áhersla lögð á að uppbyggingin taki mið af sérkennum Grafarvogs og verði í sátt við núverandi byggð. Meirihlutinn leggur jafnframt áherslu á að skoðað verði sérstaklega hvort hluti nýs íbúðarhúsnæðis geti verið ætlaður eldri borgurum og fólki sem vill minnka við sig en áfram búa í sínu hverfi, í göngufæri við þjónustu, verslanir og heilsugæslu. Með því skapast jafnframt tækifæri fyrir fleiri ungar fjölskyldur til að festa rætur í Grafarvogi þegar stærri fjölskylduhús losna. Meirihlutinn telur mikilvægt að þróun Spangarinnar styrki samfélagið í Grafarvogi í heild en leiði ekki til óhóflegrar þéttingar eða raski þeim sérkennum sem íbúar meta mikils.