Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 377
Annað
Fyrirspurn
Fram fer kynning á vinnu við hönnun og frágang í kjölfar trjáfellinga í Öskjuhlíð.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Kjartans Magnússonar:
Undirritaður þakkar fyrir góða kynningu um úrbætur í Öskjuhlíð í kjölfar trjáfellinga. Ljóst er að mikil tækifæri eru fyrir hendi á umræddu trjáfellingarsvæði, sem rétt er að nýta til að gera það að úrvals útivistarsvæði í þágu almennings. Æskilegt er að standa þannig að málum að með tímanum vaxi þar upp íslenskur birkiskógur með rjóðrum og öðrum unaðsreitum, sem myndu henta vel til útivistar, ekki síst fyrir börn og ungmenni. Æskilegt er að göngu- og hjólatengingar í austanverðri Öskjuhlíð, við vestanverðan Bústaðaveg, verði gerðar greiðfærar og tengi þannig saman ágæta stíga við Varmahlíð og Flugvallarveg.