Kjalarnes, Sætún II (Smábýli 15) - Nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1003
6. mars, 2025
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Skurnar ehf. , dags. 25. febrúar 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Deiliskipulagið nær yfir allt Sætún II á Kjalarnesi sem afmarkast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Á Sætúni II eru tvær byggingar, reistar kringum 1980 tengdar saman með tengigangi. Ungauppeldi á alifuglum til 9 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður áfram. Með deiliskipulaginu verður byggingareitur skilgreindur en annar hluti jarðarinnar er óbreytt landnotkun. Gert er ráð fyrir að tvær nýbyggingar geti risið innan byggingarreits. Stækkun á húsakosti er til að sinna kröfum um breyttan aðbúnað og aukinnar eftirspurnar eftir eggjum í landinu, samkvæmt uppdr. TAG  teiknistofu ehf., dags. 24. febrúar 2025.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.
Svar

Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1381/2024.