Lögð fram umsókn
Skurnar ehf.
, dags. 25. febrúar 2025, ásamt greinargerð, dags. 9. desember 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið nær yfir allt Sætún II á Kjalarnesi sem afmarkast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Með deiliskipulaginu verður byggingarreitur skilgreindur en annar hluti jarðarinnar er óbreytt landnotkun, samkvæmt uppdr.
TAG teiknistofu ehf.
, dags. 9. desember 2025.