Kjalarnes, Sætún II (Smábýli 15) - Nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 1023
14. ágúst, 2025
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Skurnar ehf. , dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið markast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Markmið skipulagsins er að skilgreina byggingarreit á landspildunni og skilmála. Ungauppeldi (nándeldi) á alifuglum til 16 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður í þeirri stækkun sem er fyrirhuguð, samkvæmt skipulagslýsingu TAG teiknistofu ehf. , dags. 16. maí 2025. Lýsingin var kynnt frá 3. júlí 2025 til og með 24. júlí 2025. Umsagnir bárust.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.
Svar

Vísað til meðferðar verkefnastjóra.