Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 2 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 348
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Skurnar ehf. , dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið markast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Markmið skipulagsins er að skilgreina byggingarreit á landspildunni og skilmála. Ungauppeldi (nándeldi) á alifuglum til 16 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður í þeirri stækkun sem er fyrirhuguð, samkvæmt skipulagslýsingu TAG teiknistofu ehf. , dags. 16. maí 2025. Lagt er til að skipulagslýsing verði samþykkt í kynningu.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Minjastofnun Íslands og kynna hana fyrir almenningi.