Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2025 var lögð fram umsókn
Skurnar ehf.
, dags. 25. febrúar 2025, um gerð nýs deiliskipulags fyrir Sætún II á Kjalarnesi. Skipulagssvæðið markast af umliggjandi landspildum, Enni til vesturs, Sætúni I til austurs og Þjóðvegi 1 til norðurs. Markmið skipulagsins er að skilgreina byggingarreit á landspildunni og skilmála. Ungauppeldi (nándeldi) á alifuglum til 16 vikna aldurs er í núverandi húsakosti og verður í þeirri stækkun sem er fyrirhuguð, samkvæmt skipulagslýsingu
TAG teiknistofu ehf.
, dags. 16. maí 2025. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.