Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
, dags. 11. júní 2024, um gerð deiliskipulags fyrir 1. áfanga uppbyggingar á Kringlusvæði á lóðunum Kringlan 1-3 og 5 fyrir allt að 418 íbúða byggð í bland við verslun- og þjónustu með áherslu á fjölbreytt og aðlaðandi borgarumhverfi, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG Arkitekta, dags. 21. febrúar 2025, br. 15. september 2025. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 5. febrúar 2025, br. 15. september 2025 og hönnunarhandbók, dags. í október 2025. Tillagan var auglýst frá 25. apríl 2025 til og með 24. júní 2025. Umsagnir og athugasemdir bárust. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. júní 2025 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.