Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 339
Annað
Fyrirspurn
Fært úr trúnaðarbók kynning á breytingu deiliskipulags Kringlunnar – Áfanga, sem kynnt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs, sbr. liður nr. 23, dags. 5. mars 2025. Frá fundi umhverfis- og skipulagsráðs 5. mars 2025:
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins:
Þakkað er fyrir kynningu á spennandi fyriráætlunum á Kringlureit þar sem fjölbreytileiki og skemmtileg dvalarsvæði eru í fyrirrúmi. Beðið er um að rýnt sé hvernig betur væri hægt að gera ráð fyrir gönguleið sem tengir Suðurver og gangbraut yfir Kringlumýrarbraut við svæðið, og áleiðis stystu leið að miðju hverfisins og áfram í átt að Kringlu. Þéttasta nálæga byggð Hlíðamegin er norðan við Hamrahlíð og stöðug umferð gangandi vegfarenda þaðan sem sækja verslun og þjónustu í Kringlu yfir daginn og fram á kvöld, og þvera götuna við Suðurver. Vel fer á því að virða þá umferð við skipulag.