Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 357
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. , dags. 11. júní 2024, um gerð deiliskipulags fyrir 1. áfanga uppbyggingar á Kringlusvæði á lóðunum Kringlan 1-3 og 5 fyrir allt að 418 íbúða byggð í bland við verslun- og þjónustu með áherslu á fjölbreytt og aðlaðandi borgarumhverfi, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG Arkitekta, dags. 21. febrúar 2025, br. 15. september 2025. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar, dags. 5. febrúar 2025, br. 15. september 2025 og hönnunarhandbók, dags. í október 2025. Tillagan var auglýst frá 25. apríl 2025 til og með 24. júní 2025. Umsagnir og athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram hönnunarhandbók, dags. febrúar 2025. Tillagan var auglýst frá 25. apríl 2025 til og með 24. júní 2025. Umsagnir og athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. október 2025. Lagt er til að tillagan verði afgreidd með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.
Svar

Samþykkt sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. október 2025.
Vísað til borgarráðs.