Lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
, dags. 11. júní 2024, um gerð deiliskipulags fyrir 1. áfanga uppbyggingar á Kringlusvæði á lóðunum Kringlan 1-3 og 5 fyrir allt að 418 íbúða byggð í bland við verslun- og þjónustu með áherslu á fjölbreytt og aðlaðandi borgarumhverfi, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG Atkitekta, dags. 21. febrúar 2025. Einnig er lögð fram hönnunarhandbók, dags. febrúar 2025. Lagt er til að tillagan verði samþykkt í auglýsingu.