Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. janúar 2026 var lagt fram bréf Skipulagsstofnunar, dags. 23. desember 2025, þar sem tilgreint er að stofnunin geti ekki tekið afstöðu til efnis og/eða forms deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem skýra þar betur ýmis atriði og gera lagfæringar á gögnum, sbr. bréfi. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt svarbréfi skrifstofustjóra skipulags- og byggingarmála til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, dags. 10. mars 2026, hönnunarhandbók deiliskipulagsins og greinargerð (ný útgáfa að teknu tilliti til athugasemda, umhverfisskýrsla Kringlusvæði 2024, Kringlureitur 1 - Endurnotkunaráætlun 2024, húsakönnun_39, álit Minjastofnunar um fornleifaskráningu, álit Minjastofnunar um varðveislugildi bygginga, byggðakönnun Borgarsögusafns 2014, hljóðvist, forsendur og niðurstöður (VSÓ) 2024, samgöngumat 1. áfanga (VSÓ) 2024, Kringlan 1 - Spennistöð endurnotkunar og niðurrifsáætlun 2023, hringrásarviðmið og C0, 2 útreikningar, 2023, ástandsmat bygginga og möguleikar varðandi burðarþol 2024, skilyrði um meðferð byggingaframkvæmda (2023), flóðahættumat VSÓ 2024, frárennslis- og mengunaráætlun 2024 og grunnvatns- og ofanvatnslausnir 2022.
Lagt fram.