Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Bæjarstjórn nr. 62
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 50. fundi skipulagsnefndar frá 10. september sl. liður 4. Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36. Í breytingunni felst breytt notkun á svæðinu úr leikskóla í íbúðarhúsnæði. Skilgreindir eru byggingareitir, hæðir húsa, hámarksbyggingarmagn, svæði undir bílastæði á lóð og nýr göngustígur sem liggur með fram lóðinni. Lóðamörk eru óbreytt. Gert er ráð fyrir einu 3ja hæða íbúðarhúsi ásamt skýli fyrir hjóla- og sorpgeymslu á lóðinni. Ekki er gert ráð fyrir kjallara undir húsum. Þriðja hæð íbúðarhússins skal vera inndregin a.m.k. um 3 m á langhlið og 2 m á skammhliðar. Heildarfjöldi íbúða í húsinu geta orðið allt að 40. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 3.000 m2 og nýtingarhlutfall er um 0,97.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um uppfærð gögn fyrir afgreiðslu bæjarstjórnar. Mælist nefndin til þess að aðliggjandi lóðarhöfum verði sérstaklega kynnt áformin.
Svar

Til máls taka Ari B. Thorarensen, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 10 atkvæðum, að framlögð deiliskipulagsbreyting, sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36, verði samþykkt til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir að aðliggjandi lóðarhöfum verði sérstaklega kynnt áformin.

800 Selfoss
Landnúmer: 162831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10061964
Deiliskipulag
Deiliskipulag við Tryggvagötu og Fossheiði
Samþykkt 22.03.1989 · Deiliskipulag. Nýtt DSK