Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 mánuði síðan.
Bæjarstjórn nr. 66
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 53. fundi skipulagsnefndar frá 26. nóvember, liður 5. Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36 á Selfossi. Tillagan var í kynningu frá 25.9.2025 til og með 17.10.2025 og var frestað afgreiðslu á fundi skipulagsnefndar eftir kynningu þann 5.11 síðastliðinn þar sem farið var fram á að brugðist væri við athugasemdum sem bárust vegna tillögunnar með ítarlegri hætti. Er nú lögð fram uppfærð tillaga sem gerir ráð fyrir tilfærslu á byggingarreit innan lóðar og minnkuðu byggingarmagni. Gert er ráð fyrir einu 3ja hæða íbúðarhúsi ásamt sorpskýli á lóðinni. Ekki er gert ráð fyrir kjallara. Þriðja hæð íbúðarhússins skal vera inndregin, a.m.k. 5 m á norðurhlið og a.m.k. 2 m á aðrar hliðar. Heildarfjöldi íbúða í húsinu geta orðið allt að 36 og er gert ráð fyrir samsvarandi fjölda bílastæða innan lóðarinnar. Byggingar skulu standa innan byggingareita. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 2.600 m2 og nýtingarhlutfall er um 0,84.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. Að mati nefndarinnar hefur verið komið til mót við þær athugasemdir og umsagnir sem bárust á kynningartíma tillögunnar með fullnægjandi hætti með uppfærslu tillögunnar. Mælist nefndin til þess að þeir sem athugasemdir gerðu til kynningu málsins fái sérstaka tilkynningu um auglýsingu þess.
Samþykkt með 4 atkvæðum af 5. Fulltrúi S-lista greiðir atkvæði gegn tillögunni.
Svar

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingu á deiliskipulagi svæðisins á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati bæjarstjórnar hefur verið brugðist við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar á kynningartímanum.

800 Selfoss
Landnúmer: 162831 → skrá.is
Hnitnúmer: 10061964
Deiliskipulag
Deiliskipulag við Tryggvagötu og Fossheiði
Samþykkt 22.03.1989 · Deiliskipulag. Nýtt DSK