Til máls taka Ari B. Thorarensen, D-fulltrúi, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Áfheiður Eymarsdóttir, Á-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða, með 10 atkvæðum, að framlagt deiliskipulag, sem felur í sér afmörkun útivistasvæðis sem Skátafélagið Fossbúar munu hafa til afnota, verði samþykkt til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bæjarstjórn samþykkir að samhliða verði kynnt óveruleg breyting á aðalskipulagi Árborgar sem tekur til viðkomandi svæðis.